Um Þorpið

Vettvangur starfsemi Þorpsins er frítími og forvarnir og er megináherslan lögð á barna- og unglingastarf. Uppbygging þjónustu í frítímanum er ein af kröfum nútímans. Þorpið leggur áherslu á að bjóða upp á fjölbreytt og áhugavert frístundastarf þar sem lögð er áhersla á forvarnir. Í gegnum þetta starf er börnum og ungmennum beint inn á braut heilbrigðis og jákvæðs lífernis. Þorpið leggur metnað sinn í að veita faglega og umfangsmikla þjónustu og vinnur í nánu samstarfi við börn og ungmenni, foreldra og frjáls félagasamtök. Markmið Þorpsins er að vera opin fyrir nýjungum og breytingum í starfseminni á hverjum tíma. Mikilvægt er að mæta þörfum hvers og eins og miða starfsemina út frá þörfum samfélagsins hverju sinni.

Innan Þorpsins eru Arnardalur | Félagsmiðstöð fyrir 5.-10.bekk, Hvíta húsið | Ungmennahús fyrir 16+, Turninn | Frístundaklúbbur fyrir börn og ungmenni með sértækar stuðningsþarfir og Krakkadalur | Frístundaheimili, safnfrístund fyrir 3. - 4. bekk.

Stjórendur Þorpsins eru Ívar Orri Kristjánsson forstöðumaður, Elísabet Sveinbjörnsdóttir deildarstjóri Krakkadals, Jón Hjörvar Valgarðsson deildarstjóri unglingastarfs og Linda Ósk Alfreðsdóttir deildarstjóri stoðþjónustu

Starfsmenn Þorpsins taka mið af og vinna eftir siðareglum Félags fagfólks í frítímaþjónustu.