Bæjarstjórnarfundur unga fólksins

Bæjarstjórnarfundur unga fólksins fór fram þriðjudaginn 17.febrúar.

Var þetta 24. bæjarstjórnarfundur unga fólksins og hefur hann verið haldin árlega síðan árið 2002.
Eins og áður voru það fulltrúar ungmennaráðs sem fóru með framsögu á fundinum.
Fundurinn var einkar vel heppnaður og áttu fulltrúar ungmennaráðs og bæjarstjórnar Akraness mikilvægt samtal um málefni barna og ungmenna.

Niðurstöður Barnaþings 2025 voru nýttar til undirbúnings og kom ungmennaráð röddum barna á Akranesi skýrt á framfæri til kjörinna bæjarfulltrúa.

Til umræðu voru m.a. málefni grunnskólanna, frítími og félagslíf barna, tillaga að sérstökum ungmennasjóði, bæjarhátíðir, íþróttir og tómstundir og aukinn fjárstuðningur í félagsmiðstöðvastarf.

Öll erindi frá BUF fara nú hefðbundna leið í stjórnsýslu og verða tekin fyrir á fundum ráða næstkomandi vikur.
Fundargerð er aðgengileg á heimasíðu Akraneskaupstaðar.