Danskeppni Samfés

Danskeppni Samfés fór fram föstudaginn 6. febrúar í félagsmiðstöðinni Garðalundi og tókst einstaklega vel.
Mikil stemning ríkti í salnum og greinilegt var að keppendur höfðu lagt mikla vinnu og metnað í atriðin sín.

Keppt var í einstaklings- og hópakeppni í aldurshópunum 10–12 ára og 13–16 ára.
Atriðin voru fjölbreytt, skapandi og kraftmikil og gaman var að sjá hversu mikla dansgleði og hæfileika ungmennin sýndu á sviðinu.
Dómarar keppninnar voru Baldvin, Inga María og Eydís Gauja, sem áttu ekki auðvelt verk fyrir höndum við að velja sigurvegara.

Arnardalur sendi eitt lið til keppni í ár, X-12. Það er skipað 12 stelpum úr 6.bekk og kepptu þær í hópakeppni 10-12 ára.
Stelpurnar hafa undanfarnar vikur stundað stífar æfingar í speglasalnum í Arnardal og það má með sanni segja að æfingin skapi meistarann!
Atriði stelpnanna var einstaklega vel samið og framkvæmdin á dansinum var virkilega öflug.
Eftir mjög harða samkeppni milli þeirra 16 hópa sem kepptu í hópakeppni 10-12 ára að þá stóðu X-12 uppi sem sigurvegarar í Danskeppni Samfés!

Einstakur hópur sem verður gaman að fylgjast með næstu árin.
Til hamingju með frábæran árangur X-12!

Sigurvegarar keppninnar voru eftirfarandi:

10–12 ára | Einstaklingskeppni
🥇 - Elísabet Lea – Ásinn
🥈 - Myrra – Vitinn
🥉 - Bella – Vitinn

10–12 ára | Hópakeppni
🥇 - X-12 – Arnardalur
🥈 - Two jerks – Hraunið
🥉 - Dance girls – Ekkó

13–16 ára | Einstaklingskeppni
🥇 - Elena Bilic – Pegasus
🥈 - Sunneva – Fellið
🥉 - Guðrún Telma – Mosinn

13–16 ára | Hópakeppni
🥇 - Dancing Queeeens – Setrið og Ásinn
🥈 - Spell on you – Zelsíus
🥉 - Katseye aðdáendur – Afdrep