Opnað hefur verið fyrir skráningu í sumarfrístund Þorpsins fyrir sumarið 2025.
Námskeið fyrir börn fædd 2015 – 2018.
Um er að ræða viku námskeið sem standa frá kl. 9:00 - 16:00. Einnig er í boði að velja námskeið f.h (kl 09:00-12:30).
Námskeiðin fara fram í Frístundamiðstöðinni Þorpinu sem stendur við Þjóðbraut 13. Námskeiðin verða bæði fjölbreytt og skemmtileg. Mikil útivera og skapandi starf. Þátttakendur koma sjálfir með nesti, þ.e. hressingu fyrir hádegi og hádegismat.
Boðið verður upp á eftirmiðdegishressingu.
Leikjanámskeið sumarsins verða með þema sniði fyrir hverja viku.
Mikil áhersla er á hópefli, útiveru og fjölbreytilega daga.
Verð og greiðslufyrirkomulag
Innifalið í námskeiðunum er öll dagskrá, samgöngur þegar við á og eftirmiðdagshressing
ATH: Greiðsla skal fara fram á Abler áður en námskeið hefst.
Skráning fer fram: á Abler – Sumarfrístund – Þorpið 2025
Hlekkur: https://www.abler.io/shop/torpid/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6Mzk2NTk=?
Athygli er vakin á því að lögmálið "fyrstur kemur, fyrstur fær" gildir.