Um 50 nemendur tóku þátt í ungmennaþingi Barnaheilla í frístundamiðstöðinni Þorpinu á Akranesi fimmtudaginn 5.nóvember.
Ungmennin voru úr 10.bekk Brekkubæjar- og Grundaskóla, sem og á fyrsta ári Fjölbrautaskóla Vesturlands.
Þetta var síðasta af þremur ungmennaþingum sem haldin voru á Akranesi í sömu vikunni, því barnaþing fyrir nemendur úr 5.-7. bekk og 8.-9. bekk voru dagana á undan.
Svona vinnustofur eru árlegir viðburðir á Akranesi og það sýndi sig að unga fólkið þar er þaulvant að taka þátt í hópavinnu.
,,Ungmennin sem mættu á þingið voru hreint út sagt frábær.“ sagði Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastýra ofbeldisforvarna og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum. „Margt sem kom fram á þinginu rímar við það sem við höfum heyrt annarsstaðar á landinu, um hvernig samfélagsmiðlar móta samskipti og væntingar til ungs fólks, og einnig óskin um meiri upplýsingar og meira samtal. Þetta segir okkur bara eitt- að við þurfum að sinna forvörnum og fræðslu miklu betur um þessi mál.”
Með ungmennaþingum Barnaheilla er leitast við að heyra reynslu unga fólksins og þeirra eigin upplifun.
Ungmennin á Akranesi voru sér og sínum skólum til fyrirmyndar, og tóku mjög virkan þátt í vinnustofunni.
Þátttakendum var skipt niður á átta borð með mismunandi umræðuefni sem sneri að ofbeldi í nánum samböndum unglinga. Borðstjórar voru úr ungmennaráði Akraness og stjórn nemendafélags FVA, ásamt sérfræðingum frá velferðarsviði Akraneskaupstaðar og starfsmönnum Þorpsins.
Hóparnir færðu sig svo reglulega á milli borða til að ræða málefnið út frá ýmsum hliðum og læra að þekkja muninn á heilbrigðum og óheilbrigðum samskiptum, þekkja birtingamyndir ofbeldis, hvert bæði þolendur og gerendur geta leitað eftir aðstoð, hvaða úrræði eru í boði, við hverja er best að tala og eins um mikilvægi fræðslu og forvarna eins og Barnaheill standa að.
Ungmennaþinginu lauk svo með veislu þar sem þátttakendum var boðið upp á pizzur eftir góðar umræður.
Allir fengu svo hleðslubanka og margnota taupoka að kveðjugjöf frá Barnaheillum.
Það er mikill lærdómur falinn í þátttöku á svona ungmennaþingi og það skapar dýrmætt tækifæri fyrir ungt fólk til að tjá skoðanir sínar og væntingar.
Barnaheill munu taka saman upplýsingar og niðurstöður af þinginu og senda stjórnendum Þorpsins til að vinna með frekar.